hæhæ það er Jóhanna sem bloggar. ég var að fá nýa síðu sem ég er með ein sem er www.blog.central.is/jomagu svo endilega kíkið inná hana líka á eftir að bæta hana aðeins. Ég á samt ekki eftir að hætta með þessa síðu við höldum bara áfram með hana einsog við höfum gert. annars er ekki meira að seiga.
kveðja Jóhanna
» 2 hafa sagt sína skoðun
Nú erum við komin formlega í sumarfrí, reyndar voru skólaslitin á fimmtudaginn. Svo vorum við í sauðburði á Valþjófsstöðum sem var mjög gaman. Jóhanna er núna í sauðburði á Leifsstöðum. Reyndar verðum við ekki í fríi allt sumar við förum í unglingavinnuna en það er ekki hemanám í því þetta er víst allt sem er að gerast núna.
Kveðja Auður og Guðrún
» 0 hafa sagt sína skoðun
Já ég veit það er orðið lankt síðan ég bloggaði. Já einsog flestir vita núna þá meiddi ég mig í fimleikum á miðvikudaginn. Er núna með höndina í fatla. En á morgun fer ég í sauðburð á Leifsstaði sem er náttúrlega æðislegt. En það er ekki mikið meira að seiga núna kveðja Jóhanna Margrét
Gleðilega páska öllsömul
kveðja Jóhanna Margrét
» 4 hafa sagt sína skoðun
Jæja nú er farið að stittast í páskana.
Ég fór á Akureyri í gær að ná frænda minn hann Eystein Orra ,og var náttúrlega líka bara að versla. Þegar við fórum í Hagkaup þá var ég að skoða buxur og var ný búin að taka til í fataskápnum mínum og fóru fullt af fötum, en var allavega pláss í fataskápnum svo ég fékk tvær buxur. En eftir verslunarleiðangurinn fórum við á greifann og var Andri G með okkur þegar við vorum búni að borða fórum við út á flugvöll og náðum í hann Eystein okkar og eftir það fórum við í leikhús á Litlu Hrillingsbúðina en á meðan ætluðu Eysteinn og pabbi í bíó á Ísöld 2. Þegar við vorum búin í leihúsinu höfðu pabbi og Eysteinn aldrei farið í bíó því að hann Eysteinn var orðinn fárveikur. En leikritið var geggjað sat uppi og sá vel og ég hvet alla til að fara á þetta leikrit, en þetta er kannski ekki beint fyrir mjög unga krakka. Já svo var náttúrlega árshátíð og ég, Auður og Guðrún vorum að kinna atriðin nema okkar það voru Andri Þór og Freydís sem kinntu það, en leikritið hjá okkur var síðast og það gekk mjög vel.
En nú er ekki meira að seiga frá þessu.
Kveðja Jóhanna Margrét
» 1 hafa sagt sína skoðun
Jæja haldið þið að það sé komin tími á blogg.
En það er nú ekki mikið að blogga um. Við fórum í fimleika í dag það var fínt.
En deigum þetta gott.
Jæja hvar á ég að byrja. Já sko ég átti afmæli 9 mars einsog flestir vita sem þekkja mig. Á afmælisdaginn minn var Stóra upplestrarkeppnin haldin og úr fyrri bloggum erum við búnar að seiga að við komumst áfram á Raufarahöfn. Ég fór á Raufarhöfn klukkan 1 og var komin að verða 2. Já keppnin byrjaði klukkan 2 og þá settumst við í stóla uppá sviði. Við byrjuðum að lesa kafla uppúr bók og svo ljóð, þá kom hlé og í boði voru kleinur, snúðar og kókómólk. Eftir hléið lásum við ljóð sem við völdum sjálf. Eftir að allir voru búin að lesa fóru dómararnir að dæma og á meðan var Sigurður að tala og láta okkur fá bók, við fengum bókina appelsínu stelpan. (Það var svolítið skrítið að það voru 10 keppendur og það voru allt stelpur, það átti að vera ellefu en sá ellefti var strákur en hann var veikur.) En dómararnir voru ekki búnir að áhveða sig eftir að var búið að afhenda bækurnar svo að stelpa sem heitir Þorbjörg söng 2 lög. Dómararnir voru búinir að ákveða sig og komu og tilkinntu úsrslitin og í þriðja sæti var Guðrún og í öðru sæti var ég og í fyrsta sæti var Þorbjörg. En eftir að vera búið að tilkinna úrslitin voru myndartökur og svo fór ég heim og var að undirbúa afmælið mitt. Það átti að byrja 6 og var til 10. Það var gaman fannst mér.
Samskóla mótið var 10 mars og flestir fóru held ég og það var rosa gaman. Ég keppti í fótbolta og ratleik og eitthvað pínulítið í körfubolta. Það var keppt til klukkan 4 (held ég), svo var farið í ratleikinn og ég og Guðrún tókum þátt. Það átti að fara á svona staði og þar fengum við svona miða sem voru svona allskonar þrauti og á fyrsta miðanum var danska á öðrum miðanum var enska á 3 miðanum var íslenska á 4 miðanum var stærðfræði á 5 miðanum var eðlisfræði og á 6 miðanum var æji ég man það ekki en svo áttum við að fara aftur þangað sem við byrjuðum og leisa þessar þrautir en við gátum ekki leist allar svo að við skiluðum bara miðunum og fórum uppá hótel að borða og þar hittum við Auði sem var að klára að borða svo fórum við í húsið sem upplestrarkeppnin var haldin og hlustuðum þar á tónlist svo var verðlaunaafhending og það var kallað uppá sviðið þá, þau eða þær sem voru í fyrstu 3 sætunum í keppnunum og það var byrjað á ratleiknum og það var kallað einhver nöfn og svo ég og Guðrún og svo einhver önnur nöfn og ég og Guðrún unnum og fengum rosalegan bikar fyrir. En Auður á líka í honum því að við Guðrún hefðum ekki farið ef að Auður hefði ekki nennt að bíða.en svo var bara dansað þangað til við fórum en nú er ekki meira að seiga frá þessu samskólamóti.
En nú er það bara dagurinn í dag ég er búin að vera veik síðan á þriðjudaginn og það er ekkert fjör en það eru nú einhver veikindi að ganaga og er nokkuð margir veikir. En ég er búin að hanga heim og horfa endalaust á sjónvarp og vera í tölvu og gera ekki neitt en mamma var heima í dag og var að sauma gardínur meðan ég var í tölvunni en ég hef ekki meira að seiga núna bless í bili.
Þá er það Öskudagurinn
við vorum Sandra, Túliníus og Betúel sem eru ketlingarnir úr hefðarköttunum. Við forum í göngunna klukkan 2 og fórum í öll fyrirtækin og sungum svo fórum við í íþrótahúsið og vorum þar í hálftíma að því loknu fórum við heim og borðuðum nammi.
Kv. Auður Guðrún og Jóhanna
Jæja þá er það að blogga aftur.
Ég var að lesa comectin(kann ekki að skrifa þetta) hér fyrir neða og það virðist að ég verði að skrifa um upplestrarkeppnina. Já semsagt það var forkeppnin í upplestrarkeppninni og það var bara gaman. Miðdeildin í lundi kom og horfði á. Við lásum upp sögu eftir Guðrúnu Helgadóttur, svo lásum við ljáð eftir Jónas Hallgrímsson og svo ljóð að eigin vali. Svo byrjaði keppnin við lásum sögu kafla og svo ljóð eftir Jónas Hallgrímsson þá var gert hlé í smá tíma eftir hléið lásum við ljóðið sem við völdum okkur sjálf eftir það fóru dómararni( Óli Björn og séra Jón Árman)að áhveða úrslitin. Eftir svolitla langa stund komu þeir fram en var smá miskilingur því þeir héldu að það ættu bara að komast tvö áfram, þannig að við þurftum að bíða lengur en ekki lengi loksins komu þeir og sögðu úrslitin og þau sem komust áfram sem voru 3 voru Auður Kristjánsdóttir,Guðrún Kristjánsdóttir og Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir og svona var það við þrjár komumst áfram. Og ekki er meira að seiga frá þesstu kveðja Jóhanna Margrét.
Þá er það skólaferðalagið.
Við fórum með rútunni í Lund og fengum þar morgunninn og vorum þar svolítið lengur en áætlað var því það var svo vont veður. Eftir að kennarar voru búnir að innheimta peninga og fá símanúmmer hjá þeim sem áttu síma var lagt á stað. Þegar við komum á Akureyri fórum við beint á söbvei. Eftir það fórum við í íþróttahöllina og tókum dótið inn og komum okkur fyrir eftir það bras fótrum við á skauta og vorum á þeim í 2 tína held ég, líkt mér þá meiddi ég mig smá á putta en ekkert allvalega hann er reyndar ennþá smá bólginn en ég meiði mig ekkert. En fjallið var lokað þennan dag útaf veðri svo það var bara frjáls tími. Ég, Auður og Guðrún fórum í sund með stelpunum. Þegar við fórum uppúr fórum við bara uppí höll og vorum þar. Daginn eftir var frjáls tími meðan 9 og 10 bekkkur fóru að skoða frammhaldsskóla. Við fórum í sund og svo útí bæ. Ég, Silja, Perla,Gríma og einhverjir fleiri fóru í bakaríið. Um klukkan eitt fórum við uppí fjall og þá var ég að prófa bretti í annað skipti og ég var einsog ég veit ekki hvað en kannski bara álíka léleg og flestir sem voru að fara í fyrsta skipti. Eftir að vera búin í kennslu fórum við í hólabrekku og renndum okkur smá þar. Við vorum búin að vera í fjallinu í 3 klukkutíma sirka fórum við í íþróttahöllina.Við fengum frjálsan tíma. Um kvöldmat fengum við pizzu. Jói rak alla úr rúminu klukkan níu víð fórum uppí fjall klukkan tíu og vorum þar til klukkan 3 þá fórum við útí bæ nokkrir krakkar en eftir klukkan fjögur vorum við búin að taka allt dótið saman og fórum útí rútu. Fengum pizzu rétt áður en við fórum og svo eftir að allir voru búinir að borða lögðum við á stað hei og komum heim um klukkan 10.
Þá er ekki meira að seiga frá þessu.
Kv. Jóhanna Margrét
» 3 hafa sagt sína skoðun
Nú er að seiga frá þorrablóti yngriborgara
Það var mánudaginn 13. feb. Það var fyrir leikskóla og grunnskólakrakka. Gunna kom með afganaga af þorrablóti eldriborgara og við fengum að smakka. Við smökkuðum ýmsan súrmat, (sem var reyndar ekki afbragðsgóður.) Þetta var í síðasta tíma fyrir hádeigismat. Við sungum og heyrðum sögu og svo fórum við heim.
Kveðja Auður, Guðrún og Jóhanna
Laugamótið var föstudaginn 10 febrúar síðastliðinn. Við fórum með rútunni í Lund og fengum okkur morgunnmat þar og lögðum svo á stað kl. 9.. Við stoppuðum á Húsavík, meðan 8-10 bekkur var að skoða frammhaldsskólann á Húsavík fór 7. bekkur að skoða grunnskólann á Húsavík. Þegar við vorum búin að skoða skólann í svona klukkutíma lögðum við á stað á Lauga. Þegar við komum á þangað fórum við í skólakinningu og fórum svo að borða eftir það. Íþróttamótið byrjaði klukkan 2. og þá byrjuðu Jóhanna og Guðrún í langstökki.Eftir langstökkið fóru Auður og Jóhanna í þrístökk, þegar það var búið fór Jóhanna í kúluvarp og að því loknu fór hún í sundbolta. Eftir sundboltann fórum við að hvetja körfuboltaliðin. Þegar körfuboltinn var búinn fórum við í stelpufótboltann. Þegar hann var búinn fórum við og hvöttum strákana í fótboltanum. Þegar öll keppni var búin var sundlaugapartí, þegar flestir voru komnir ofaní komu Alli og Svala og tilkinntu það að við hefðum unnið stuðningsbikarinn, og allir fögnuðu ákaft. Um klukkan tíu þá kom Jói að reka okkur uppúr. Eftir að vera komin uppúr lögðum við á stað heim og vorum komin heim um tólf.
Svo er það þorrablót eldriborgara.
Við fórum á þorrablót eldriborgara þann 11.(Við erum greinilega orðnar svona gamalar.) Við vorum þarna reyndar bara til að skemmta fólki, en við fengum nú samt að borða. Við spiluðum á hljóðfærin og Kjartan Bjarni, Einar Ólason og Bakkabandið spilaði líka. Við fórum heim þegar skemmtiatriðin voru búin. Þá voru allir að fara að dansa.
kveðja Auður, Guðrún og Jóhanna
Hæ hæ ég fór til Akureyrar í dag og það var fínt.Við byrjuðum á að fara að leita að einhverri gardínubúð sem við fundum nú ekki. En við fórum alla vega í skíðaþjónustuna að skoða snjóbretti og ég fékk náttúrlega snjóbretti sem ég verð að borga samt smá í sjálf. En allavega héldum við áfram að fara í búðir og versluðum aðeins í Húsasmiðjunni. En þegar við fórum á Glerártorg hittum við einhverja konu sem mamma þekkti og svo sáum við þær Hugrúnu og Klöru. Og þær höfðu skotist inn í búð fyrir mömmu sína og ég fór að tala aðeins við þær, svo löbbuðum við út með þeim og hittum Höllu mömmu þeirra. mamma fór að tala við hana og á meðan var ég og þröstur að bíða eftir að fá smá að borða því við höfðum ekkert borðað síðan um morguninn og klukkann var að verða hálf fjögur.En þegar mamma og Halla voru búnar að tala smá saman og fara inní Rúmfatalagerinn og skoða eitthvað fórum við inní Nettó og keyptum eitthvað fullt góðgæti og fórum með það heim til Hildar sem er systir Höllu og borðuðum þar. Ég, Hugrún og Klara fórum að spila og Þröstur fór í tölvuna.En þegar við vorum búin að vera heima hjá Hildi í svona klukkutíma þá þurftum við að fara. Við þurftum fyrst að fara í Hagkaup og kaupa eitthvað þar og síðan fórum við heim. Ég var náttúrlega svakalega glöð með snjóbrettið sem ég fékk. En við komum heim klukkan að verða níu og kláruðum að horfa á saungvakeppnina og horðum svo á spugstofuna og svo á úrslitin og Silvía Nótt komst áfram og margir glaðir með það. Eftir úrslitin fór ég bara að skrifa þessa sögu. Látum þetta gott heita núna bæ bæ.
» 8 hafa sagt sína skoðun
jæja loksins kom snjór. Ég Auður og Guðrún gerðum snjóvirki í garðinum hjá þeim og það var bara pínu lítið minna en Ingunn sem er systir þeirra. Við erum búnar að vera mest úti síðan snjórinn kom. En svo var enginn skóli á mánudaginn vegna veðurs. annars er ekki mikið að seiga
kveðja jóhanna
Halló halló það er verið að parketleggja hér og allt í drasli. Það er llíka verið að mála og þá þarf að breiða yfir húsgögnin svo ekki fari máling á þau. En það er annars ekkert mikið að frétta af okkur. Það var féló og Kiddi var ekki með það heldur Dúna og það var fínt. Mér fannst alveg gamana og ég held að Auði og Guðrúnu hafi líka fundist gaman.það var mikið spilað fótbolta. En klukkan tæplega ellefu fórum við heim. Ég meiddi mig eitthvað á ristinni og haltraði í morgunn en ég held að þetta sé nú allt að skána. Var svo að leika við Auði og Guðrúnu í dag og erum búin að hjálpa smá til að færi hluti annars erum við bara búin að vera í tölvu. En held að það sé komið nó í bili.
Kveðja Jóhanna